Geitaafurðarmerkið

Nú eru límmiðar fáanlegir hjá stjórn GFFÍ. Eins og fram hefur komið hefur verið unnið að því í sumar 2018 að búa til miða til notkunar fyrir framleiðendur geitaafurða. Þessir miðar eru nú tilbúnir til afgreiðslu hjá gjaldkera (laufbrekka@kjalarnes.is). Hver rúlla er 1000 stk. og kostar 3000 kr. Plús sendingarkostnaður. Skilyrði til að þeir fáist afhentir eru tilgreind hér fyrir neðan:

Reglur um notkun á merki fyrir geitaafurðir samþykktar af stjórn GFFÍ 6.júní 2018.

1. Merkið er eign Geitfjárræktarfélags Íslands GFFÍ.

2. Einungis félagsmenn í GFFÍ geta sótt um leyfi til að nota merkið á afurðir sínar. Merkið má nota við merkingu, kynningu og markaðssetningu.

3. Merkið er ætlað til notkunar á allar geitaafurðir, þær verða að innihalda að minnsta kosti 75 % geitaafurðir.

4. Óheimilt er að breyta merkinu á nokkurn hátt, nema að viðhöfðu samráði við stjórn GFFÍ.

5. Óheimilt er að þriðji aðili noti merkið til kynninga eða sölu, nema að viðhöfðu samráði og samþykki stjórnar GFFÍ. Merkið má nota við hlið merki framleiðandans og öðrum merkjum sem hann kann að notast við t.d. merki Beint frá býli eða vottunarmerki Túns.

6. Upphafsgjald skal greiða fyrir leyfi til notkunar, er það 8000 krónur árið 2018. Stjórn áskilur sér rétt til breytinga á leyfisgjaldi síðar.

7. Límrúllur með merki geitaafurða verður til sölu hjá stjórn GFFÍ og verður nánar auglýst hvernig þeirri sölu verður háttað. Skilyrði fyrir afhendingu er að leyfisgjald sé greitt og árgjald til GFFÍ sé greitt ár hvert.

8. Lögum og reglum um meðferð og sölu matvæla ber að framfylgja.

9. Stjórn GFFÍ áskilur sér rétt til að fylgjast með að skilyrðum um notkun merkisins séu uppfyllt og að grípa til aðgerða sé þess þörf.

Kveðja, stjórnin.