Þessir einblöðungar frá Matís, Geitfjárræktarfélag Íslands, eru til fróðleiks fyrir geitabændur og fólk sem vill kaupa geitaafurðir eða fyrir fólk sem þekkir ekki geitaafurðir. Félagar í GFFÍ! Sendið áhugasömum eintök eða prentið út og dreifið til almennings eins og þið viljið!
Ritið sem er á ensku er 384 blaðsíður og hægt að lesa á netinu. Það fjallar um ýmis konar framleiðslu úr geitahráefni víðs vegar um heim og gæti virkað sem innblástur.
Vörurnar eru gróflega flokkaðar í fernt:
– hrávörur eins og mjólk, slátur, hár/ fiða
– lítið unnar vörur til neyslu eins og saltað kjöt, ís, jógúrt
– vörur sem hafa umbreyst við meðhöndlun svo sem ostur, leður, pylsur eða eldað kjöt
– mikið unnar vörur sem innihalda aðra framleiðslu svo sem lyf, hnífar, geitostakaka
Geitfjárræktarfélagið hefur verið í samstarfi við MATÍS um aukna verðmætasköpun geitfjárafurða. Hluti þess verkefnis er kjötmat og meðferð í sláturhúsum. MATÍS hefur sent okkur eyðublað sem hver og einn geitabóndi fyllir út eftir slátrun og sendir til Matís samkvæmt upplýsingum sem á plagginu eru. Það er mikilvægt að við tökum öll þátt í þessu til að Matís Ohf fái allar upplýsingar sem til þarf til að bæta meðferð sláturdýra í sláturhúsum og kjötmatið. Atvinnugreinin er ný og allir þurfa að leggja hönd á plóg til að betur fari.
Aðalfundur verður haldinn n.k. laugardag 23. mars 2019.
Samkvæmt 2. gr. þá geta eftirfarandi orðið félagar:
Félagar geta orðið þeir einstaklingar og lögaðilar sem þess óska og eiga geitur svo og þeir sem sérstakan áhuga hafa á geitfjárrækt. Félagssvæðið er allt landið. Kjörgengi hafa allir 18 ára og eldri.
Við mælum með að sem flestir sem eiga geitur gangi í félagið, þeim mun öflugara verður það. Ný búgrein og nýjar vörur fyrir landsmenn.
Ef þú vilt ganga í félagið sendu tölvupóst: geit[hja]geit.is
Þessi tafla var tekin út í dag, 16. mars 2019, af heimasíðu Hagstofunnar. Tölurnar ná ekki lengra aftur en til ársin 1980. En fjöldi geita hefur verið mestur 1930 um 3000 dýr (Geitfjárrækt, 2011. Birna Kristín Baldursdóttir)
Við minnum á rafbókina Geitfjárrækt eftir Birnu K. baldursdóttur sem hægt er að lesa á netinu. Bókin er liður í rafbókaútgáfu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.
Nú eru límmiðar fáanlegir hjá stjórn GFFÍ. Eins og fram hefur komið hefur verið unnið að því í sumar 2018 að búa til miða til notkunar fyrir framleiðendur geitaafurða. Þessir miðar eru nú tilbúnir til afgreiðslu hjá gjaldkera (laufbrekka@kjalarnes.is). Hver rúlla er 1000 stk. og kostar 3000 kr. Plús sendingarkostnaður. Skilyrði til að þeir fáist afhentir eru tilgreind hér fyrir neðan:
Reglur um notkun á merki fyrir geitaafurðir samþykktar af stjórn GFFÍ 6.júní 2018.
1. Merkið er eign Geitfjárræktarfélags Íslands GFFÍ.
2. Einungis félagsmenn í GFFÍ geta sótt um leyfi til að nota merkið á afurðir sínar. Merkið má nota við merkingu, kynningu og markaðssetningu.
3. Merkið er ætlað til notkunar á allar geitaafurðir, þær verða að innihalda að minnsta kosti 75 % geitaafurðir.
4. Óheimilt er að breyta merkinu á nokkurn hátt, nema að viðhöfðu samráði við stjórn GFFÍ.
5. Óheimilt er að þriðji aðili noti merkið til kynninga eða sölu, nema að viðhöfðu samráði og samþykki stjórnar GFFÍ. Merkið má nota við hlið merki framleiðandans og öðrum merkjum sem hann kann að notast við t.d. merki Beint frá býli eða vottunarmerki Túns.
6. Upphafsgjald skal greiða fyrir leyfi til notkunar, er það 8000 krónur árið 2018. Stjórn áskilur sér rétt til breytinga á leyfisgjaldi síðar.
7. Límrúllur með merki geitaafurða verður til sölu hjá stjórn GFFÍ og verður nánar auglýst hvernig þeirri sölu verður háttað. Skilyrði fyrir afhendingu er að leyfisgjald sé greitt og árgjald til GFFÍ sé greitt ár hvert.
8. Lögum og reglum um meðferð og sölu matvæla ber að framfylgja.
9. Stjórn GFFÍ áskilur sér rétt til að fylgjast með að skilyrðum um notkun merkisins séu uppfyllt og að grípa til aðgerða sé þess þörf.
Stjórnarfundur GFFÍ var haldinn í Reykjavík 21. febrúar 2019. Mættir voru Formaður Anna María Flygenring. Gjaldkeri Guðni Ársæll Indriðason. Ritari Anna María Lind Geirsdóttir. Meðstjórnandi Guðný Ívarsdóttir. Aðrir stjórnarmenn komust ekki að þessu sinni: Birna K. Baldursdóttir, meðstjórnandi, Guðmundur Freyr Kristmundsson og Bettina Wunch varamenn.
Á fundinum var ákveðið að halda aðalfund félagsins 23. mars í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Takið daginn frá.